Breyttar áherslur í afreksmálum LH

25. febrúar 2019
Fréttir
Ljósmyndari: Gunnar Freyr Gunnarsson

Landssamband hestamannafélaga (LH) kynnti á blaðamannafundi í Bláa Lóninu þann 24. febrúar, landsliðshóp LH í hestaíþróttum. Þetta er fyrsta skrefið í breyttum áherslum LH í afreksmálum.

Hingað til hefur landslið Íslands á HM verið valið út frá svokölluðum lykli og úrtökumóti. Á úrtökumótinu gátu 5 knapar tryggt sér sæti í landsliðinu og liðstjórinn valdi 2 í viðbót, var þá m.a. litið til árangurs á Íslandsmóti og keppnisárangurs íslenskra knapa erlendis. Landsliðið var svo kynnt rúmum mánuði fyrir HM og má segja að landsliðið hafi verið virkt í rétt rúma tvo mánuði sem er afar stuttur tími og áherslan skiljanlega einungis á þann viðburð.

Breytingin sem LH hefur gert á landsliðsmálum er að landsliðshópur LH verður virkur allt árið um kring og mun koma að ýmsum viðburðum, mótum og sýningum sem eru til þess fallnar að efla hestaíþróttina og styrkja liðið til árangurs.

Með því að halda úti virkum landsliðshóp gefst tækifæri til að sinna betur markvissu afreksstarfi í hestaíþróttum þar sem áhersla er lögð á knapann sem íþróttamann. Meðal annars verður starfrækt fagteymi sérfræðinga á heilbrigðis- og íþróttasviði, sem verða landsliðsknöpum innan handar í sinni þjálfun. 

Það sem felst í markvissu afreksstarfi er meðal annars að byggja upp afreksíþróttamenn, afreksknapa í þessu tilfelli, með langtímamarkmið í huga og skapa umhverfi þar sem afreksknapi getur bætt sig í sinni íþrótt, til að auka líkur á enn betri árangri á komandi stórmótum.

Sá landsliðshópur sem er virkur ár hvert verður í forvali þegar valdir eru keppendur fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramót og Norðurlandamót. Landsliðsþjálfari getur þó tekið inn í liðið nýja knapa sem sýnt hafa framúrskarandi árangur í keppni, með skömmum fyrirvara, ef hann telur að það muni styrkja landsliðið. Markvisst endurval knapa, byggt á keppnisárangri og mati landsliðsþjálfara, er þó sífellt í gangi.

Sigurbjörn Bárðason sem ráðinn var liðstjóri landsliðs Íslands í janúar 2018 verður nú titlaður landsliðsþjálfari líkt og í öðrum íþróttagreinum. Arnar Bjarki Sigurðarson sem var liðstjóri afrekshóps LH verður landsliðsþjálfari U21 landsliðshóps LH, það er næsta skref sem LH tekur í afreksmálum og verður U21 landsliðið kynnt innan tíðar. Sigurbjörn hefur yfirumsjón með báðum hópum en mikið samstarf verður á milli landsliðsþjálfaranna.

Fyrsta stóra verkefni landsliðsins er Heimsmeistaramót í Berlín í byrjun ágúst. Þar munu keppa sjö landsliðsknapar í flokki fullorðinna, fimm knapar úr U-21 landsliðshópnum og fjórir titilhafar sem munu verja heimsmeistaratitla sína frá því á HM 2017 og eiga því öruggt sæti í liðinu að þessu sinni. Titilhafarnir eru Jakob Svavar Sigurðsson, Gústaf Ásgeir Hinriksson, Konráð Valur Sveinsson og Máni Hilmarsson.

Valið á landsliðinu sjálfu, þ.e. þeir sem verða valdir til að fara á HM og keppa fyrir Íslands hönd, verður einnig með breyttu sniði. Miðað verður við árangur m.a. á WorldRanking-mótum og Íslandsmóti, en ekki haldin sérstök úrtökumót eins og tíðkaðist áður. Liðið verður tilkynnt fomlega í Líflandi eftir Íslandsmót sem verður haldið fyrstu helgina í júlí.

Knapar í landsliðshóp LH eru skyldugir til að mæta á um helming viðburða á dagskrá landsliðsins, skyldumæting er á ákveðna forgangsviðburði, m.a. tiltekin WorldRanking mót, Íslandsmót og „Þeir allra sterkustu“ sem er fjáröflunarviðburður landsliðsnefndar. Annað sem er á dagskrá landsliðsins er t.d. mælingar, fræðsla, undirbúningsfundir o.s.frv.

Landsliðshóp LH skipa 19 afreksknapar í fremstu röð í hestaíþróttum hérlendis og erlendis og þrír titilhafar í ungmennaflokki frá því á HM 2017 en þeir hafa ekki fasta setu í landsliðshópnum enn sem komið er en tilheyra hópnum fram yfir HM.

Þeir 19 afreksknapar sem valdir hafa verið í landsliðshópinn eru:

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir

Árni Björn Pálsson

Ásmundur Ernir Snorrason

Bergþór Eggertsson

Guðmundur Björgvinsson

Hanna Rún Ingibergsdóttir

Haukur Tryggvason

Helga Una Björnsdóttir

Hinrik Bragason

Hulda Gústafsdóttir

Jakob Svavar Sigurðsson, titilhafi frá HM 2017

Jóhanna Margrét Snorradóttir

Jóhann Skúlason

Siguroddur Pétursson

Sylvía Sigurbjörnsdóttir

Teitur Árnason

Viðar Ingólfsson

Þórarinn Eymundsson

Þórarinn Ragnarsson

 Titilhafar úr ungmennaflokki frá því á HM 2017 eru:

 Gústaf Ásgeir Hinriksson

Konráð Valur Sveinsson

Máni Hilmarsson