Breytingar í Kortasjá

01. febrúar 2016
Dagný og Ljómi / HKG 2004

Reiðleiðir um Skógarströnd og Snæfellsnes eru nú aðgengilegar í kortasjánni 490 km til viðbótar við það sem áður var skráð í kortasjána. Í heildina er þá búið að skrá 11.323 km af reiðleiðum í kortasjána. 

Farið er inn á kortasjá um heimasíðu LH, www.lhhestar.is og smellt á flipa hægra megin á síðunni.
Einnig er hægt að fara inn á kortasjá um tengla sem er að finna á heimasíðum flestra hestamannafélaga.

Minnum á Facebook síðu Samgöngunefndar LH fyrir allar nýustu upplýsingar:
Kortasjá / Samgöngunefnd LH

Kveðjur;
Samgöngunefnd LH - Kortasjárteymið.