Bein útsending frá LM á RÚV

14. maí 2018
Fréttir
Áskell Heiðar og Hilmar undirrita samning v/LM2018.

Sjónvarp allra landsmanna, RÚV, mun fylgjast vel með Landsmóti hestamanna í sumar. Framkvæmdastjóri Landsmóts, Áskell Heiðar Ásgeirsson, og deildarstjóri íþróttadeildar RÚV, Hilmar Björnsson, skrifuðu nýverið undir samstarfssamning. RÚV mun gera mótinu góð skil og sýna frá helstu hápunktum mótsins, bæði verður boðið upp á beinar útsendingar sem og samantektarþætti frá mótinu.  

Sú nýjung verður að sýnt verður beint frá öllum A-úrslitum sunnudaginn 8.júlí og verður sett upp sérstök „Landsmótsstofa“ með sérfræðingum sem munu ræða um það sem fram fer. Landsmót þakkar RÚV sýndan áhuga á mótinu og hlakkar til samstarfsins. 

Einnig er vert að minnast á að hægt verður að kaupa sérstakt streymi frá mótinu líkt og verið hefur undanfarin mót. Það verður nánar kynnt síðar.