Átta ræktunarbú á FM 2009

25. júní 2009
Fréttir
Átta ræktunarbú skarta sýnu besta á FM 2009
Ræktunarbússýningar gefa stórmótum alltaf skemmtilegan blæ og á fjórðungsmóti munu átta bú koma fram og skarta sínu besta á laugardeginum kl. 16. Ræktunarbússýningar gefa stórmótum alltaf skemmtilegan blæ og á fjórðungsmóti munu átta bú koma fram og skarta sínu besta á laugardeginum kl. 16.
Allt eru þetta hörku sterk bú og þau sem staðsett eru á Vesturlandi hafa öll komið fram á fyrri fjórðungsmótum á Kaldármelum en hin eru nýliðar á FM.

Hrossaræktunarbúin sýna hvert 5 hross og er það í traustum höndum, Ágústar Sigurðssonar, rektors Háskólans á Hvanneyri að velja sigurvegara.

Eftirtalin átta bú taka þátt í ræktunarbússýningu á FM 2009:

- Álftarós, Borgarbyggð
- Höfðabakki, Húnaþingi vestra
- Nýi bær 2, Borgarbyggð
- Skáney, Borgarbyggð
- Skjólbrekka, Borgarbyggð
- Steinnes, Austur-Húnavatnssýslu
- Stóriás, Borgarbyggð
- Tunguháls II, Skagafirði