Hestamannafélagið Máni 50 ára

22. október 2015
Fréttir

 

Hestamannafélagið Máni er hálfrar aldar gamalt á þessu ári.

Af því tilefni verður haldin vegleg árshátíð laugardaginn 31.október nk í Stapa í Reykjanesbæ.

Fordrykkur og forréttir fara fram í Rokksafninu  og opnar húsið kl.18.30.

Miðasala verður mánudaginn 26.október nk milli kl.20-21 í Reiðhöll Mána.

Einnig er hægt að hringja í síma 893-0304 og panta miða.

Allir velkomnir.