Árni skiptir um lið

10. janúar 2017


Þriðja liðið sem við kynnum til leiks er lið Top Reiters. Liðið hefur verið sigursælt í Meistaradeildinni en það sigraði liðakeppnina árin 2012, 2013 og 2014 og var einnig kosið skemmtilegasta liðið öll árin. Top Reiter liðinu barst öflugur liðsstyrkur þetta árið en Árni Björn Pálsson kemur nýr inn fyrir Jóhann R. Skúlason.

Liðsstjóri liðsins er Viðar Ingólfsson og aðrir liðsmenn eru Jakob Svavar Sigurðsson, Matthías Leó Matthíasson og Teitur Árnason.

Viðar Ingólfsson, liðsstjóri, stundar tamningar og þjálfun að Kvíarhóli, Ölfusi. Hann er margfaldur Íslandsmeistari, Landsmótssigurvegari í tölti og hefur verið atkvæðamikill á keppnis- og kynbótabrautinni undanfarin ár. Hann var íþróttaknapi ársins 2008 og gæðingaknapi ársins 2007. Viðar sigraði Meistaradeildina 2007 og 2008.

Árni Björn Pálsson er útskrifaður sem tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla og stundar tamingar og þjálfun á Oddhól á Rangárvöllum. Hann hefur staðið sig gríðarvel á keppnisbrautinni undanfarin ár. Hann varð Íslandmeistari þrjú ár í röð 2012-2014 og aftur árið 2016 og sigraði tölt á Landsmóti bæði 2014 og 2016. Árni Björn sigraði einstaklingskeppni Meistaradeildarinnar árið 2014, 2015 og 2016 og var valinn kynbótaknapi árins 2013 og knapi ársins 2014 og 2016.

Jakob Svavar Sigurðsson er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla. Hann rekur tamningastöð að Fákshólum. Hann hlaut knapaverðlaun FT á LM2008, Íslandsmeistari í slaktaumatölti 2010, 2012 og 2013, Íslandsmeistari í fimmgangi 2012 og 2013 á Al frá Lundum og Íslandsmeistari í fjórgangi 2013 á Eldi frá Köldukinn. Jakob sigraði B flokkinn á LM2016 á Nökkva frá Syðra-Skörðugili og varð í þriðja sæti í A flokki á Skýr frá Skálakoti. Hann hefur jafnframt verið að gera góða hluti í kynbótasýningum. Jakob var kosinn íþróttaknapi ársins 2012 og 2013 og gæðingaknapi ársins 2016.

Matthías Leó Matthíasson stundar tamingar og þjálfun að Hvoli í Ölfusi. Hann hefur unnið við tamningar og þjálfun í meira en 10 ár til dæmis á Kjartansstöðum og í Þjóðólfshaga. Matthías vann fjórgang á Reykjavíkurmeistaramótinu 2015 í fyrsta flokki og var fjórði á Íslandsmóti 2015.

Teitur Árnason er tamningamaður og reiðkennari frá Hólaskóla og starfar við tamningar og þjálfun á Hvoli í Ölfusi. Teitur hefur átt góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni, þrátt fyrir ungan aldur, og þá sérstaklega í skeiðgreinum en hann gerði sér lítið fyrir og landaði Heimsmeistaratitli í gæðingaskeiði árið 2015 og varð annar í 250 m skeiði. Teitur var valinn skeiðknapi ársins 2014 og 2015. Á síðasta ári varð hann svo Norðurlandameistari í gæðingaskeiði.

Top Reiter hefur verið í reiðtygjaframleiðslu síðan 1989 og framleiðir fjölbreytt úrval af hágæða vörum eins og hnökkum, reiðtygjum og fatnaði. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar á hestabúgarðinum Hrafnsholti í Þýskalandi og eru Top Reiter vörurnar seldar út um allan heim. Eigendur eru þeir feðgar Herbert Ólason og Ásgeir Svan Herbertsson. Verslunin Top Reiter í Ögurhvarfi var opnuð í desember 2007. Þar er að finna flest allt sem þarf til hestamennskunnar. Top Reiter vörurnar fást einnig í einhverjum mæli í verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi og í verslunum Líflands víðsvegar um landið.