Árni Björn í beinni á Facebook

10. apríl 2018
Fréttir

Árni Björn sigurvegari Meistaradeildar Cintamani í hestaíþróttum verður í beinni útsendingu  á Facebook á morgun, miðvikudag, 11. Apríl kl 20:00. Þar mun hann svara spurningum áhorfenda.

Árni Björn sigraði deildlina í ár eftir hörkubaráttu við Jakob S. Sigurðsson. Árni Björn sem er í liði Top Reiter sigraði einnig deildina árið 2014, 2015 og 2016. Nú er tækifærið til fræðast um Árna, þjálfunaraðferðir hans eða annað sem ykkur hefur legið á hjarta.

Einstakur viðburður á Facebook.