Áríðandi tilkynning til keppenda í hestaíþróttum

08. mars 2010
Fréttir
HÍDÍ hefur haldið tvö samræmingarnámskeið á undanförnum dögum.   Ýmsar breytingar voru kynntar dómurum um áherslur í dómstörfum og túlkunaratriði á reglum sem notaðar hafa verið.   Dómurum finnst áríðandi að þessar ábendingar skili sér til allra keppenda. Hjálagt fylgja helstu breytingarnar – en keppendur eru hvattir til að prenta út Leiðaran af heimasíðu LH www.lhhestar.is undir keppnismál – íþróttadómarar og kynna sér hann.   HÍDÍ hefur haldið tvö samræmingarnámskeið á undanförnum dögum.   Ýmsar breytingar voru kynntar dómurum um áherslur í dómstörfum og túlkunaratriði á reglum sem notaðar hafa verið.   Dómurum finnst áríðandi að þessar ábendingar skili sér til allra keppenda. Hjálagt fylgja helstu breytingarnar – en keppendur eru hvattir til að prenta út Leiðaran af heimasíðu LH www.lhhestar.is undir keppnismál – íþróttadómarar og kynna sér hann.   Í skeiði inná hringvelli er meiri munur  í einkunn fyrir heilan sprett eða hálfan.
hámarkseinkunn 2.0 en var 3.5 fyrir hálfan sprett.
Ný skemamynd um dómgæslu á skeiði á hringvelli.  Þar er rækilega undirstrikað
að ekki skal ríða hesti á skeiði gegnum beygju og ef það er gert er refsað.
Ef hestinum er rennt í skeiðið eða hann er lagður fyrir framan miðju skammhliðar
er dregið frá 2.0 af einkunn.  Hestur á ekki að vera á skeiði fyrr en hann getur farið í beinni línu inn í langhliðina.  Eins og allir vita getur það skapað hættu á meiðslum
ef hesti er riðið á skeiði gegnum beygju.
Sé gult spjald gefið vegna grófrar reiðmennsku skal einkunn fyrir það atriði ekki vera
hærra en 3.5.
Dómarar eru hvattir til að verðlauna prúðar og fagmannlegar sýningar
Gæðingaskeið: “HESTURINN SKAL VERA INNÍ TREKTINNI ÞEGAR HANN 
ER SETTUR Á STÖKK – HESTURINN SÉ EKKI SETTUR Á STÖKK FYRIR FRAMAN TREKTINA (UPPHAFSLÍNU) ÞÁ ER HÁMRKSEINKUNN 3.5”

Ef spurningar vakna er ykkur heimilt að senda fyrirspurnir á HÍDÍ á: pjetur@pon.is

Með bestu kveðjum
Stjórn HÍDÍ