Áríðandi tilkynning frá Hestaíþróttadómarafélagi Íslands ( HÍDÍ)

25. janúar 2010
Fréttir
Endanlegar dagsetningar á samræmingarnámskeiðum HÍDÍ verða eins og áður var auglýst sunnudaginn 21. feb. 2010 í reiðhöllinni á Blönduósi og sunnudaginn 7. mars 2010 í Ingólfshöllinni í Ölfusi (Ekki 7.feb í Reykjavík eins og áður misritaðist). Endanlegar dagsetningar á samræmingarnámskeiðum HÍDÍ verða eins og áður var auglýst sunnudaginn 21. feb. 2010 í reiðhöllinni á Blönduósi og sunnudaginn 7. mars 2010 í Ingólfshöllinni í Ölfusi (Ekki 7.feb í Reykjavík eins og áður misritaðist). Námsskeiðin munu hefjast klukkan 9.00 árdegis og standa fram eftir degi. Áríðandi er að hestaíþróttadómarar mæti og viðhaldi réttindum sínum. Fyrirhugað er að hafa nýdómaranámskeið í tengslum við Reykjavíkurmeistaramótið í vor ef næg þátttaka næst.  Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að láta vita til HÍDÍ á netfangið: pjetur@pon.is.

Stjórn HÍDÍ