100.000 krónur fyrir fyrsta sætið!

20. maí 2011
Fréttir
Samhliða gæðingamóti/úrtöku hjá Fáki 26.-29. maí fer fram Tölt T1 World Ranking mót en þar er aldurstakmark 18 ára á árinu og eldri. Samhliða gæðingamóti/úrtöku hjá Fáki 26.-29. maí fer fram Tölt T1 World Ranking mót en þar er aldurstakmark 18 ára á árinu og eldri.

Gert er ráð fyrir að töltið fari fram laugardaginn 28. maí.  Aðeins einn flokkur í boði þar sem einn knapi er inn á í einu.  Vegleg peningaverðlaun verða í töltinu, fyrir 1. sætið kr. 100.000,- fyrir 2. sætið kr. 30.000,- og fyrir 3. sætið kr. 15.000,-. Svo það er til mikils að vinna. Skráð verður í töltið annað kvöld í Reiðhöll Fáks, milli kl. 20 og 22 og einnig í símum 567 0100 og 567 2166.

Mótanefnd Fáks