Andvarafréttir

23. nóvember 2009
Fréttir
Efnilegasti piltur og efnilegasta stúlka Andvara 2009. Mynd: www.andvari.is
Aðalfundur hestamannafélagsins Andvara var haldinn miðvikudaginn 18. nóvember síðastliðinn. Ásamt hefðbundnum aðalfundarstörfum var farið yfir skipulagsmál Andvara. Aðalfundur hestamannafélagsins Andvara var haldinn miðvikudaginn 18. nóvember síðastliðinn. Ásamt hefðbundnum aðalfundarstörfum var farið yfir skipulagsmál Andvara. Skipulagsfulltrúi Garðabæjar, Arinbjörn Vilhjálmsson mætti og kynnti fyrir Andvarafélögum aðal- og deiliskipulag svæðisins á Kjóavöllum.
Á fundinum var útnefndur Íþróttamaður Andvara sem að þessu sinni var Erling Ó. Sigurðsson. Efnilegasta stúlkan var Guðlaug Jóna Matthíasdóttir og efnilegasti pilturinn var Arnar Lárusson.