Áhugamannadeild Spretts 2017

01. september 2016

Laugardaginn 3. september kl. 20:15 verður dregið úr umsóknum nýrra liða í Áhugamannadeild Spretts fyrir keppnisárið 2017. Spennan er gífurleg en sjö lið hafa sótt um þau þrjú sæti sem eru laus í deildinni.

Útdrátturinn fer fram í Samskipahöllinni þegar hið víðfræga Metamót Spretts fer fram.  Einnig verða kynntir liðsmenn þeirra liða sem tryggðu sér sæti eftir keppnisárið 2016 ásamt aðalstyrktaraðila deildarinnar.

Hér er glæsilega dagskráin sem verður í Samskipahöllini á laugardagskvöldið:

18:30 Matarhlé - Steikarhlaðborð
19:45 B-úrslit tölt
20:15 Áhugamannadeild
20:45 Fyrirtækjatölt
21:30 A-úrslit tölt
22:15 Ljósaskeið
23:15 Kvöldvaka/Uppboð 

Við hvetjum sem flesta til að mæta snemma fá sér gott að borða á steikarhlaðborði og eiga gott kvöld í Spretti. 

Hlökkum til að sjá ykkur öll

Nefndin