Afmælishátíðir um helgina

27. nóvember 2009
Fréttir
Nú um helgina fagna tvö aðildarfélög LH merkum áfanga í sögu félaganna. Nú um helgina fagna tvö aðildarfélög LH merkum áfanga í sögu félaganna.
Hestamannafélagið Sleipnir varð 80 ára 12. júní s.l. og heldur upp á afmæli sitt með jólahlaðborði í Þingborg annað kvöld.

Hestamannafélagið Geysir er 60 ára í dag 27. nóvember og heldur upp á afmælið sitt á morgun laugardag í Hvolnum.

LH óskar þessum félögum innilega til hamingju með afmælið.