Afmælishátíð Landssambands hestamannafélaga

03. desember 2009
Fréttir
60 ára afmælishátíð Landssambands hestamannafélaga verður haldin 18.des. nk. Í IÐNÓ, nánast á sama stað og sambandið var stofnað en stofnfundur var haldinn í Baðstofu iðnaðarmanna 18. desember 1949 þar sem tólf hestamannafélög lögðu grunninn. Gunnar heitinn Bjarnason leiddi undirbúningsvinnu að stofnun sambandsins en fyrsti formaður þess var H.J. Hólmjárn. 60 ára afmælishátíð Landssambands hestamannafélaga verður haldin 18.des. nk. Í IÐNÓ, nánast á sama stað og sambandið var stofnað en stofnfundur var haldinn í Baðstofu iðnaðarmanna 18. desember 1949 þar sem tólf hestamannafélög lögðu grunninn. Gunnar heitinn Bjarnason leiddi undirbúningsvinnu að stofnun sambandsins en fyrsti formaður þess var H.J. Hólmjárn. Auk hefðbundinnar keppni, æfinga og þjálfunar til líkamlegrar heilsuræktar er það, samkvæmt lögum Íþróttasambands Íslands, í verkahring LH að sinna hagsmunamálum sem tengjast hestaíþróttum svo sem á sviði ræktunarmála, tamninga, samgöngu- og ferðamála, landnýtinga- og umhverfismála.

Hátíðin verður sett með fánareið úrvalsknapa á gæðingum. Eftirtaldir aðilar fjalla um fjölþætt hlutverk íslenska hestsins og það viðamikla og blómlega starf sem honum tengist, bæði hér heima og erlendis. Kári Arnórsson flytur inngang um sögu LH, Þorvaldur Kristjánsson fjallar um íslenska hestinn og vísindasamfélagið, Ásta Möller ræðir lykilþætti í markaðssetningu íslenska hestsins, Benedikt Erlingsson fjallar um hestinn í listum og menningu, Pétur Behrens flytur erindi um tamningu og reiðlist og Hjörný Snorradóttir fjallar um stefnumótun varðandi framtíð Landsmóts hestamanna. Að auki mun Dísella Lárusdóttir syngja fyrir gesti og Gunnar Eyjólfsson flytur ljóð. Fundarstjóri hátíðarinnar verður Friðrik Pálsson.

Árið 2010, 60 ára starfsár Landssambands hestamannafélaga, verður nýtt til þess að kynna enn betur íslenska hestinn og mikilvægi hans fyrir íslensku þjóðinni.  Landsmótið á Vindheimamelum verður hápunkturinn og hin eiginlega afmælisveisla allra hestamanna.