Afmælishátíð FT frestað!

30. ágúst 2010
Fréttir
Stjórn og afmælisnefnd Félags Tamningamanna hefur ákveðið að fresta afmælishátíð félagsins. Áætlað er að halda hátíðina í  lok janúars 2011. Stjórn og afmælisnefnd Félags Tamningamanna hefur ákveðið að fresta afmælishátíð félagsins. Áætlað er að halda hátíðina í  lok janúars 2011. Mikill metnaður er fyrir hendi að gera afmæli félagsins góð skil en vegna ástandsins í hestamennskunni á Íslandi í dag var ákveðið að fresta hátíðinni og gefa hestum og knöpum lengri tíma til þess að jafna sig.

Afmælishátíð félagsins verður væntanlega haldin í lok janúar í reiðhöllinni í Víðidal og þar verður boðið uppá stórglæsilega kennslusýningu fremstu reiðkennara og knapa Íslandshestamennskunnar.