Æskan og hesturinn 2018 í Léttishöllinni

03. maí 2018
Fréttir

Æskan og hesturinn verður haldið í Léttishöllinni á Akureyri, sunnudaginn 6. maí kl. 13:00
Aðgangur ókeypis

Á sýningunni sýna börn á öllum aldri listir sínar og færni á hestbaki. Sýningin er hápunktur vetrarstafsins hjá hinum ungu knöpum og er mikil tilhlökkun að sýna fyrir framan áhorfendur. 

Skráning á staðnum fyrir þá krakka sem hafa áhuga á að taka þátt í pollaflokk, og krökkunum er velkomið aðmæta í grímubúningi.
Fjölmennum í Léttishöllina og styðjum við krakkana okkar.

Sjón er sögu ríkari. 
Eftir sýningu verður boðið upp á grill fyrir alla.