Aðventukvöld Kvennadeildar Gusts

17. nóvember 2010
Fréttir
Hið árlega aðventukvöld Kvennadeildar Gusts verður haldið fimmtudaginn 25. nóvember nk. kl. 19:30 í veitingasal reiðhallar Gusts við Álalind í Kópavogi. Hið árlega aðventukvöld Kvennadeildar Gusts verður haldið fimmtudaginn 25. nóvember nk. kl. 19:30 í veitingasal reiðhallar Gusts við Álalind í Kópavogi. Dagskráin hefst kl. 20 og fram koma Björk Jakobsdóttir, Selma Björnsdóttir og 2 hálfvitar. Einnig verður flott happdrætti að venju og léttar veitingar í boði kvennadeildarinnar.
Sölusýning á handverki verður á staðnum og veigar seldar á vægu verði.
Allar konur eru velkomnar - komum saman og eigum góða stund í Gusti!

Kvennadeild Gusts