Aðalfundur GDLH

24. september 2014

Stjórn GDLH boðar til aðalfundar félagsins í húsakynnum LH þann 31. október næstkomandi, kl. 19:00. Dagskrá verður með hefðbundnu sniði, líkt og lög félagsins gera ráð fyrir.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir fullgildir gæðingadómarar sem eru skuldlausir við félagið.

Ef félagsmenn vilja koma skilaboðum til stjórnar, eða leggja fram tillögur eða hugmyndir fyrir fundinn, þá vinsamlegast hafið samband við Sigurð Straumfjörð í síma 825-2519 eða á gdlh@gdlh.is.

Með kveðju,

Stjórn GDLH