Aðalfundur FT 3.des.

26. nóvember 2010
Fréttir
Aðalfundur Félags tamningamanna fer fram föstudaginn 3. desember nk. á Kænunni í Hafnarfirði og hefst kl. 18. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Víkingur Gunnarsson verða með kynningu á nýju BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum. Aðalfundur Félags tamningamanna fer fram föstudaginn 3. desember nk. á Kænunni í Hafnarfirði og hefst kl. 18. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun Víkingur Gunnarsson verða með kynningu á nýju BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum.

FT félagar eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í fundarstörfum.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
· Fundarsetning og skipun starfsmanna fundarins
· Ávörp gesta
· Skýrsla stjórnar
· Reikningar
· Umræður um skýrslu og reikninga
· Kynning - Víkingur Gunnarsson
· Matarhlé
· Umræður um erindi Víkings
· Kosningar
· Önnur mál


Víkingur Gunnarsson deildarstjóri hrossaræktarbrautar Háskólans á Hólum verður með erindi um breytt
fyrirkomulag á námi við hrossaræktarbraut. Eldri nemendur skólans sem og tilvonandi nemendur eru hvattir til
þess að mæta ásamt verknámskennurum og kynna sér nýtt fyrirkomulag námsins.
Boðið verður upp á kvöldverð á fundinum og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna og taka þátt í fundarstörfum

Félag tamningamanna