103 stóðhestar í Veltunni!

17.04.2025

Ekki klikka á að tryggja þér toll undir einn af þeim glæsihestum sem taka þátt í Stóðhestaveltunni. Opnað verður fyrir sölu á miðum í veltuna kl 12:00 á laugardaginn. Miðaeigendur geta síðan dregið sér toll frá kl 17:00 í Samskipahöllinni í Spretti. Það eru risa stór nöfn í pottinum og allt eru þetta úrvals hestar sem stóðhestaeigendur hafa boðið fram til styrktar landsliðinu. Takk stóðhestaeigendur!

Við hlökkum til að sjá afkvæmin næsta sumar!

Athugið að miðasala á viðbuðrinn sjálfan - ALLRA STERKUSTU,  er í fullum gangi, tryggið ykkur miða á forsöluverði. Þá minnum við einnig á að hægt er að kaupa miða í mat, síðast komust færri að en vildu í matinn svo ekki draga það fram á síðustu stundu að næla ykkur í úrvals lambakótilettur með öllu tilheyrandi.

 

Fyrirkomulag Stóðhestaveltunnar 2025 er þannig að sala á tollum opnar kl 12:00 Laugardaginn 19. apríl á vef LH. Milli klukkan 17:00 og 19:00 veður hægt að draga tolla í Samskipahöllinni, gegn framvísun greiðslukvittunar. Þeir sem hafa ekki kost á að mæta og draga toll eða fá einhvern fyrir sig í verkefnið, geta óskað eftir því að starfsmenn LH dragi tollinn.

Miðaverð fyrir hvern toll er 70.000 kr. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.

Ekki láta þitt eftir liggja, tryggðu þér toll og hjálpaðu liðinu að komast einu skrefi nær Gullinu á HM í Sviss!

Áfram Ísland!

 

 

 

 

 

Við kynnum síðustu stóðhestana til leiks:

 

 

 

 

Hér eru upplýsingar um aðra hesta í veltunni

 

Stóðahestaveltan - skemmtilegasta fjáröflun sem um getur! | Landssamband hestamannafélaga

Sindri frá Hjarðartúni og næstu hestar í veltunni! | Landssamband hestamannafélaga

Spuni og fleiri verða líka í veltunni! | Landssamband hestamannafélaga

Fyrirkomulag Stóðhestaveltunnar og næstu hestar | Landssamband hestamannafélaga

Enn fleiri úrvals hestar í Stóðhestaveltunni! | Landssamband hestamannafélaga

Glæsilegir stóðhestar í veltunni! | Landssamband hestamannafélaga

Sautján stóðhestar bætast við veltuna! | Landssamband hestamannafélaga

Ein mest spennandi Stóðhestavelta í manna minnum! | Landssamband hestamannafélaga