Viðar og Tumi sigurvegarar kvöldsins

Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi. Mynd tekin úr ljósmyndabók LH.
Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi. Mynd tekin úr ljósmyndabók LH.
Viðar Ingólfsson, Hrímnir, á Tuma frá Stóra-Hofi kom sá og sigraði töltið í Meistaradeildinni í kvöld með einkunnina 8,17. Þeir félagar stóðu efstir eftir forkeppni með einkunnina 7,80 og héldu fyrsta sætinu allt til enda. Viðar Ingólfsson, Hrímnir, á Tuma frá Stóra-Hofi kom sá og sigraði töltið í Meistaradeildinni í kvöld með einkunnina 8,17. Þeir félagar stóðu efstir eftir forkeppni með einkunnina 7,80 og héldu fyrsta sætinu allt til enda.

Þetta er í annað sinn sem Viðar og Tumi sigra töltið í deildinni. Í öðru sæti urðu jafnir Sigursteinn Sumarliðason, Spónn.is, á Ölfu frá Blesastöðum 1A og Sigurður Sigurðarson, Lýsi, á Jódísi frá Ferjubakka 3 með einkunnina 7,83. En Sigurður sigraði B-úrslitin fyrr í kvöld.

Það var stútfullt út úr dyrum í Ölfushöllinni í kvöld á meðan keppnin fór fram í og voru áhorfendur vel með á nótunum og voru ekki feimnir við að láta í sér heyra þegar þeir voru ánægðir með það sem gerðist á vellinum.
Í einstaklingskeppninni stendur Sigurður Sigurðarson, Lýsi, enn á toppnum með 28 stig. Hulda Gústafsdóttir er komin í annað sæti með 22 stig og Jakob S Sigurðsson í það þriðja með 21 stig.

Mjótt er á munum í liðakeppninni en þar stendur enn á toppnum lið Lýsis með 121 stig, í annað sæti er komið lið Top Reiter/Ármóta/66°Norður með 119,5 stig og í því þriðja er lið Árbakka/Norður-Gatna með 109 stig.

   
Einstaklingskeppni   
Sæti Nafn Lið Samtals
1 Sigurður Sigurðarson Lýsi 28
2 Hulda Gústafsdóttir Árbakki/Norður-Götur 22
3 Jakob Sigurðsson Top Reiter/Ármót/66°Norður 21
4 Viðar Ingólfsson Hrímnir 20
5 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi 17,5
6 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is 14
7 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga 11
8 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga 10
9 Hinrik Bragason Árbakki/Norður-Götur 9,5
10 - 11 Bergur Jónsson Top Reiter/Ármót/66°Norður 6
10 - 11 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter/Ármót/66°Norður 6
12 Snorri Dal Hrímnir 4
13 -14 John Kristinn Sigurjónsson Málning/Ganghestar 3
13 -14 Sigurður Vignir Matthíasson Málning/Ganghestar 3
15 Valdimar Bergstað Málning/Ganghestar 2

Liðakeppni  
Sæti Lið Samtals
1 Lýsi 121
2 Top Reiter/Ármót/66°Norður 119,5
3 Árbakki/Norður-Götur 109
4 Auðsholtshjáleiga 103,5
5 Hrímnir 95,5
6 Málning/Ganghestar 92
7 Spónn.is 51,5