Top Reiter/Ármót sigraði liðakeppnina

Það var lið Top Reiter / Ármót sem stóð uppi sem sigurvegari liðakeppni Meistaradeildarinnar en þeir hlutu 321 stig. Liðið var jafnframt kosið skemmtilegasta liðið en það var valið af áhorfendum, dómurum og stjórn deildarinnar. Það var lið Top Reiter / Ármót sem stóð uppi sem sigurvegari liðakeppni Meistaradeildarinnar en þeir hlutu 321 stig. Liðið var jafnframt kosið skemmtilegasta liðið en það var valið af áhorfendum, dómurum og stjórn deildarinnar.
Glæsilegur árangur hjá þeim en þeir eru búnir að standa efstir í liðakeppninni frá fyrsta móti.

Í öðru sæti varð lið Hrímnis með 319,5 stig og í því þriðja varð lið Lýsis með 297,5 stig.
Sæti     Lið     Samtals
1     Top Reiter / Ármót     321
2     Hrímnir     319,5
3     Lýsi     297,5
4     Árbakki / Norður-Götur     265,5
5     Ganghestar / Málning     261
6     Spónn.is     196,5
7     Auðsholtshjáleiga     186