Þrauta og leikjadagur í Gusti

Hinn árlegi þrauta- og leikjadagur unga fólksins fer fram í reiðhöll Gusts föstudaginn langa, að venju og hefst fjörið kl. 11. Hinn árlegi þrauta- og leikjadagur unga fólksins fer fram í reiðhöll Gusts föstudaginn langa, að venju og hefst fjörið kl. 11.
Sett verður upp braut til að ríða í gegnum og allir knapar hvattir til að koma í búningum. Veitt verða verðlaun fyrir flottustu búningana og besta tímann í brautinni. Allir fá páskaegg og svo verða grillaðar pylsur á eftir.

Hvetjum Gustara til að mæta með börn og barnabörn á þennan skemmtilega viðburð sem alltaf nýtur vinsælda!

Æskulýðsnefnd