Sumarfjarnám ÍSÍ

Sumarfjarnám ÍSÍ á 1. stigi þjálfaramenntunarinnar hefst mánudaginn 28. júní nk.  Hægt er að skrá þátttöku á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 til og með föstudagsins 25. júní nk.  Sumarfjarnám ÍSÍ á 1. stigi þjálfaramenntunarinnar hefst mánudaginn 28. júní nk.  Hægt er að skrá þátttöku á namskeid@isi.is eða í síma 514-4000 til og með föstudagsins 25. júní nk.  Námið gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar og jafngildir ÍÞF 1024 í framhaldsskólakerfinu.  Námið er öllum opið, 16 ára og eldri og er allt í fjarnámi.  Þjálfarar sem klára þetta nám auk samsvarandi náms hjá sérsambandi eru komnir með réttindi sem íþróttaþjálfarar barna 12 ára og yngri.  Allir nemendur sem klára áfangann fá þjálfaraskírteini frá ÍSÍ.

Allar frekari uppl. um námið gefur sviðsstjóri fræðsusviðs á vidar@isi.is eða í síma 514-4000 og 460-1467.