Snorri Dal og Hanna Rún valin fyrir NM2010

Liðstjóri hefur valið tvo knapa til viðbótar í íslenska landsliðshópinn sem tekur þátt á NM2010. Þau Snorra Dal og ungmennið Hönnu Rún Ingibergsdóttur. Liðstjóri hefur valið tvo knapa til viðbótar í íslenska landsliðshópinn sem tekur þátt á NM2010. Þau Snorra Dal og ungmennið Hönnu Rún Ingibergsdóttur. Snorri Dal mætir sterkur til leiks á Íslandsmeistaranum Oddi frá Hvolsvelli en þeir kepptu fyrir Íslands hönd á HM2009 með góðum árangri.
Ungmennið Hanna Rún Ingibergsdóttur hefur einnig verið valin og mun hún mæta til leiks á Jarlsdótturinni Lisu frå Jakobsgården.