Skeiðleikar Skeiðfélagsins 13. maí

Drífa frá Hafsteinsstöðum, knapi Sigurður Sigurðarson.
Drífa frá Hafsteinsstöðum, knapi Sigurður Sigurðarson.
Miðvikudaginn 13. maí verða fyrstu Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði. Miðvikudaginn 13. maí verða fyrstu Skeiðleikar af fjórum sem Skeiðfélagið og stendur fyrir í ár. Verða þeir haldnir að Brávöllum, félagssvæði Sleipnis á Selfossi og hefst keppni klukkan 20:00. Keppt verður í 100m, 150m og 250m skeiði.

Tekið verður við skráningum klukkan 19:00 - 21:00 mánudaginn 11. maí í símum 664 8001 og 897 5439. Einnig er hægt að skrá í gegnum tölvupóst prinsinn@toyotaselfossi.is og marianna@arbae.is. Skráningargjald er
krónur 2.500,- á skráningu.

Greiðsla á skráningargjöldum skal hafa farið fram fyrir klukkan 12:00 miðvikudaginn 13. maí. Leggja skal skráningargjöld inn á reikning 0586-14-603238 kt. 620606-0140. Hægt er að láta senda greiðslukvittun á
ofangreind netföng sé greitt í gegnum heimabanka. Í þeim tilvikum þegar greiðandi er annar en keppandi skal tilgreina kennitölu keppanda í tilvísun kvittunar. Greiðslukvittun er eina gilda sönnun þess að greiðsla hafi farið fram.

Kveðja,

Stjórn Skeiðfélagsins