Meistaradeild UMFÍ og LH

Mótið verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 12. febrúar og verður keppt í fjórgangi og T2. Mótið er opið öllum unglingum og ungmennum 14 til 21 árs. Mótið verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 12. febrúar og verður keppt í fjórgangi og T2. Mótið er opið öllum unglingum og ungmennum 14 til 21 árs. Tekið verður á móti skráningum í andyri Reiðhallarinnar  í Víðidal og í  símum 5670100, 6604606 og 6604612  miðvikudaginn 9. febrúar frá kl 19:00 til 21:00. Greiða þarf við skráningu, ekki verður tekið á móti skráningum eftir auglýstan skráningartíma, skráningargjald er kr 2.000 á grein, aðeins er hægt að skrá 1 hest í hvora grein. Riðin verða A og B úrslit.

Þetta mót er tilvalið að fyrir þá sem vilja spreyta sig á að ríða meistaraprógramm, það er 1 inná í einu í fjórgang en 3 í tölti T2.
Einnig viljum við hvetja hestaáhugafólk að koma og fylgjast með stórskemmtilegri keppni.