LH fundur í Rangárhöll

Minnum á opinn fund um málefni LH og Landsmóts sem haldinn verður í Rangárhöllinni í kvöld, fimmtudag, klukkan 20-22. Til fundarins eru boðuð hestamannafélögin á svæðinu austan Hellisheiðar að Lómagnúpi. Minnum á opinn fund um málefni LH og Landsmóts sem haldinn verður í Rangárhöllinni í kvöld, fimmtudag, klukkan 20-22. Til fundarins eru boðuð hestamannafélögin á svæðinu austan Hellisheiðar að Lómagnúpi.
Á fundinum munu Hjörný Snorradóttir og Guðný Ívarsdóttir flytja erindi um framtíðarsýn LH og Landsmótanna, en þær vinna nú að BS- og Mastersritgerðum um þau mál.

Allir velkomnir
Stjórn LH