Landsþing - Kjörbréf

Síðasti dagur til að skila inn kjörbréfum vegna 58. Landsþings Landssambands hestamannafélaga er í dag 20. september.

Síðasti dagur til að skila inn kjörbréfum vegna 58. Landsþings Landssambands hestamannafélaga er í dag 20. september.

Kjörbréf eru send til formanna hestamannafélaganna, sem fylla þau út og sjá síðan um að koma þeim til síns héraðssambands og/eða íþróttabandalags til undirskriftar.  Kjörbréfin eru númeruð þegar fleiri en eitt hestamannafélag er í hverju íþróttaumdæmi.

Frágangur kjörbréfa verður að vera í samstarfi við Íþróttabandalög/héraðssambönd, formenn geta ekki sjálfir skrifað undir bréfin.

Ef spurningar vakna, hafið samband við skrifstofu LH. Kjörbréf þurfa að berast skrifstofu LH eigi síðar en 20. september.