KEA mótaröðin 2013

KEA mótaröðin verður í vetur haldin í reiðhöll Léttis á Akureyri. Á fyrsta mótinu sem haldið verður 14. febrúar, verður keppt í fjórgangi.

KEA mótaröðin verður í vetur haldin í reiðhöll Léttis á Akureyri. Á fyrsta mótinu sem haldið verður 14. febrúar, verður keppt í fjórgangi. 

DAGSKRÁ:
Fimmtudaginn 14. febrúar Fjórgangur
Fimmtudaginn 28. febrúar Fimmgangur
Fimmtudaginn 14. mars Tölt
Föstudaginn 29. mars Tölt T4, skeið og verðlaunaafhending

Eins og áður er KEA aðalstyrktaraðili mótaraðarinnar.

Skráningu lýkur á mánudagskvöldi kl. 24:00 fyrir hvern keppnisdag. Skráningargjald er kr. 3.000 á hverja skráningu, hámark 2 skráningar pr. knapa.

Öll keppniskvöld hefjast með knapafundi kl. 18:00 og keppnin hefst kl. 19:00.

Glæsileg verðlaun