Jólaball í Fáki!

Endurvekja á skemmtilega jólahefð hjá félaginu og blása til jólatrésskemmtunar í Félagsheimili Fáks, sunnudaginn 18. desember kl. 14-16. Endurvekja á skemmtilega jólahefð hjá félaginu og blása til jólatrésskemmtunar í Félagsheimili Fáks, sunnudaginn 18. desember kl. 14-16.
Syngjum inn jólin og dönsum í kringum jólatréð. Hver veit nema einhver jólasveinn Leppalúðason gangi á hljóðið og heilsi uppá okkur?

Vinsamlega skráið þátttöku og fjölda gesta á netfangið aeskulydsnefnd@fakur.is

Aðgangseyrir 500 - 1000 kr. (Fer eftir þátttöku)

Jólakveðjur
Æskulýðsnefnd Fáks

P.S: Minnum á skráninguna á knapamerkjanámskeiðin á fakur@fakur.is