Íþróttamaður Mána 2011

Jóhanna Margrét og Bruni hampa sigurlaunum í unglingaflokki á LM í sumar.
Jóhanna Margrét og Bruni hampa sigurlaunum í unglingaflokki á LM í sumar.
Á aðalfundi Mána sem haldinn var á 22. nóvember síðastliðinn var tilkynnt um val á íþróttamanni Mána sem er í ár Jóhanna Margrét Snorradóttir. Á aðalfundi Mána sem haldinn var á 22. nóvember síðastliðinn var tilkynnt um val á íþróttamanni Mána sem er í ár Jóhanna Margrét Snorradóttir.
Jóhanna Margrét Snorradóttir náði mjög  góðum árangri á árinu 2011.  Hún hefur verið að standa sig mjög vel undanfarin ár og er hvarvetna til fyrirmyndar og stundar sína íþrótt miklum þrótti og metnaði.  Hennar helsti árangur á árinu sem nú er senn á enda er:
Hún vann unglingaflokkinn á Landsmótinu með eftirminnilegum hætti, Íslandsmeistari í fimmgangi unglinga, Suðurlandsmeistari í fjórgangi og fimmgangi unglinga.

Stjórn Mána óskar Jóhönnu Margréti innilega til hamingju með árangurinn og titilinn.

Árangur Jóhönnu Margrétar 2011:

Vetrarmót
3.sæti

Kristjánsmótið
1. sæti

Vetrarmót
1.sæti

Iþróttamót Mána
Tölt - 2.sæti
Fjórgangur - 3.sæti,
Fimmgangur - 3-4 sæti

Firmakeppni
Unglingaflokkur - 2. sæti
B-flokkur - 1.sæti
Parareið - 2.sæti

Mánaþing
Unglingaflokkur - 1. sæti
Tamningaflokkur - 4.sæti

Landsmót
1. sæti

Íslandsmót
Fimmgangur - 1.sæti
Fjórgangur - 3.sæti

Suðurlandsmót
Fjórgangur - 1.sæti
Fimmgangur - 1.sæti