Hross í tamningu og þjálfun á vorönn

Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar, sem 2. árs nemar við hestafræðideild annast undir handleiðslu reiðkennara skólans. Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar, sem 2. árs nemar við hestafræðideild annast undir handleiðslu reiðkennara skólans.

Nú er verið að leita eftir hrossum í vinnuna eftir áramót. Tímanum frá janúarbyrjun til páskaleyfis er skipt upp í tvö tímabil, og stendur fyrra tímabilið frá 2. janúar  til 18. febrúar, en hið seinna frá 18. febrúar til 31. mars.

Kallað er eftir hrossum í þessi verkefni:

Frumtamning. Grunnvinna, sem miðar fyrst og fremst að því að gera trippin reiðfær. Samhliða er lögð áhersla á teymingar og aðra vinnu við hendi. Í mörgum tilvikum geta trippi sem koma í frumtamningar haldið rakleiðis áfram í grunnþjálfun, en það er þó ekki skilyrði. Gert verður stutt hlé á milli þessara námskeiða.
Forkröfur: Trippin komi fortamin (a.m.k. bandvön). Þau þurfa að hafa náð góðum þroska. Æskilegt er að þau séu undan 1. verðlauna stóðhestum.
Frumtamning er í boði á fyrra tímabili (2. janúar - 18. febrúar).

Grunnþjálfun. Megináhersla er lögð á að gera hrossin góð í beisli, þjálfa samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, sem og gangsetningu. Enn frekari uppbygging þreks, jafvægis og vilja.
Forkröfur: Grunnþjálfunin er framhald frumtamningar. Trippin skulu vera vel reiðfær utan dyra og teymast vel með manni.
Grunnþjálfun er í boði á báðum tímabilum, 2. janúar - 18. febrúar og 18. febrúar - 31. mars.

Þjálfun. Fyrir (meira) tamin hross á 5. -12. vetri af öllu tagi en þó eru ekki tekin gölluð hross eða hættuleg (s.s. hrekkir, rokur, slægð, húslestir). Við komuna á staðinn þurfa þau að vera í lágmarksþjálfun. Þessi áfangi er alhliða þjálfun reiðhests með áherslu á bætta svörun ábendinga, jafnvægi, hreyfingar og rými á öllum gangtegundum.
Forkröfur: Hrossin þurfa að vera heilbrigð og laus við galla, svo sem slægð, hrekki, húslesti eða áberandi viðkvæmni eða kaldlyndi.
Þjálfun er í boði á seinna tímbili, 18. febrúar - 31. mars.

Hross sem koma í grunnþjálfun eða þjálfun skulu skilyrðislaust vera í þjálfun, og járnuð.

Kostnaður - fyrir allt viðkomandi tímabil (ber ekki virðisaukaskatt), er kr.55.000.

Innifalið: Allt uppihald, auk járninga (ef við á) og ormalyfsgjafar. Þeim sem hafa hug á að koma að hrossum í eitthvert þessara námskeiða, er bent á að leggja inn pöntun sem allra fyrst. Pantanir skulu skráðar í þetta eyðublað hér.

PANTANAEYÐUBLAÐ