Hestaþing Sindra 15. og 16. júní

Hestaþing Sindra verður haldið 15. - 16. júní næstkomandi á Sindravelli við Pétursey. Hestaþingið er jafnframt úrtaka fyrir Landsmót.

Hestaþing Sindra verður haldið 15. - 16. júní næstkomandi á Sindravelli við Pétursey. Hestaþingið er jafnframt úrtaka fyrir Landsmót.

 

Dagskrá:

Föstudagur 15. júní:

Kl 10:30 Forkeppni í B- flokki gæðinga – úrtaka fyrir landsmót.

Kl 12:30 Hlé og undirbúningur fyrir hópreið

Kl 13:00 Hópreið, mótsetning               

Kl 14:00 Forkeppni í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna- og A- flokki.- úrtaka fyrir landsmót.

Skráningargjöld fyrir ungmenna- A- og B- flokk er 2500 kr á 1. hest, 2000.- kr á 2. hest knapa, 1.500.- á 3. hest knapa, 1.000.- kr á  4. hest knapa og svo framv. ( aðgangseyrir er innifalinn fyrir knapa og fær hann afhent armband í miðasölu. Skráningargjöld verða samtals að hámarki kr 15.000.- á fjölskyldu þ.e. foreldra og börn alls)

 Athugið: Keppnisröð er samkvæmt mótsskrá.

 

Kl 19:00 Töltkeppni

Töltkeppni sem er opin öllum, keppt er til úrslita. Peningverðlaun í 1. sæti. Skráningargjald 3000 kr.

Eftir töltkeppnina fer fram keppni í 100 m skeiði með fljótandi starti. Skráningargjald 500.- kr

 

Laugardagur 16. júní

Kl 11:00 úrslit í B- flokki, Polla-, barna-, unglinga-, ungmenna og A- flokki

Kl 14:30 Kappreiðar - opnar öllum

150 m skeið- 1. verðlaun 25.000 kr - Skráningargjald 2000 krónur.

300 m brokk - Skráningargjald 500 kr á hest

300 m stökk - Skráningargjald 500 kr á hest

250 m skeið - Skráningargjald 500  kr á hest.

 

Skráning er hjá:

Dóru á netfangið dorajg@simnet.is og í síma 895-5738

Síðasti skráningardagur í hringvallargreina er á miðnætti Þriðjudaginn 12. júní. Ekki verður tekið við skráningum eftir það. Hægt verður að skrá sig í kappreiðar líka á kappreiðadag. Við skráningu þarf að koma fram IS númer hest, nafn og kennitala knapa.

Skráningargjöld greiðist inn á 0317-13-302622. Kt. 540776-0169. Þar sem fram kemur nafn knapa.

 

Aðgangseyrir er kr 2.000.- fyrir tvo daga en 1.500.- fyrir einn dag. Frítt er fyrir 12 ára og yngri.