Fáksfréttir - hnallþórur og gaman!

Hið margrómaða og glæsilega kökuhlaðborð kvennadeildar verður laugardaginn 21. apríl frá kl. 14:00 - 17:00. Þá koma Harðarmenn ríðandi í heimsókn og verður tekið á móti þeim að venju með hnallþórum. Hið margrómaða og glæsilega kökuhlaðborð kvennadeildar verður laugardaginn 21. apríl frá kl. 14:00 - 17:00. Þá koma Harðarmenn ríðandi í heimsókn og verður tekið á móti þeim að venju með hnallþórum.
Riðið á móti Harðarmönnum. Lagt verður af stað frá Reiðhöllinni kl. 13:30 og hvetjum við sem flesta til að fara ríðandi á móti Harðarmönnum en ætlunin er að hitta þá við Ósakot. Veðurspáin er óvenju glæsileg og hestarnir komnir í gott form svo það eru engar afsakanir.

Stórsýningin verður á laugardagskvöldið og hefst kl. 21:00 Glæsileg afmælissýning og Bjórkvöld á eftir. Miðaverð aðeins 2.500