Bréf til ráðherra - tunguboginn

Stjórn LH sendi á dögunum bréf til Hr. Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Afrit fóru einnig á Illuga Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og yfirdýralækni Sigurborgu Daðadóttur.

Reykjavík 5. maí, 2014

 

Hr. Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu
Skúlagötu 4
101 Reykjavík

Efni: Tillaga til ráðherra vegna  niðurstöðu  rannsókna á notkun tunguboga í keppni og kynbótasýningum.

Afrit sent til: yfirdýralæknis, Sigurborgar Daðadóttur og mennta- og menningarmálaráðherra

 

Ágæti ráðherra,

Stjórn Landsambands hestamannafélaga (LH), skorar á ráðherra að setja nú þegar reglugerð sem bannar notkun allra tunguboga með vogarafli þannig að þessi búnaður verði ekki notaður í keppni og kynbótasýningum á meðan frekari rannsóknir fara fram á honum.

LH telur með öllu óásættanlegt að þessi búnaður sé í notkun hér á landi og innan FEIF í kjölfar niðurstöðu rannsókna Dr. Sigríðar Björnsdóttir og tölfræðilegrar úttektar Þorvaldar Kristjánssonar kynbótadómara og kennara við LbhÍ.  Þá staðfesta gögn úr nýlegri rannsókn í Svíþjóð á þessum sama búnaði í keppni og sýningum á íslenskum hestum samskonar áverka.

Í lögum og reglum LH og nýjum dýraverndarlögum er skýrt tekið fram að hesturinn eigi alltaf að njóta vafans og velferð hans eigi að vera höfð í fyrirrúmi. Ekki megi nota neinn þann búnað í keppni og sýningum sem sé í andstöðu við þau markmið.  Með hliðsjón af því og með vísan til almennra dýraverndarsjónarmiða telur LH að ráðherra sé skylt að banna þennan búnað þar til sýnt verður fram á hið gagnstæða við notkun hans, þ.e. að hann sé hestvænn og samræmist hugmyndum okkar um góða meðferð hesta í keppni og sýningum.

 

Virðingarfyllst,



Haraldur Þórarinsson
formaður Landssambands hestamannafélaga