Bleikt Töltmót – Bara fyrir konur

Á konudaginn, þann 20. febrúar kl. 14, verður haldið Bleikt Töltmót í Reiðhöllinni í Víðidal. Mótið er einungis ætlað konum, 17 ára og eldri. Á konudaginn, þann 20. febrúar kl. 14, verður haldið Bleikt Töltmót í Reiðhöllinni í Víðidal. Mótið er einungis ætlað konum, 17 ára og eldri.

Keppt verður í fjórum flokkum: byrjanda, minna vanar, meira vanar og opnum flokki.

Skráningagjöld eru í formi frjálsra framlaga sem munu renna óskert til Krabbameinsfélags Íslands til styrktar rannsóknum á brjóstakrabbameini.
Skráningu skal senda á netfangið ddan@internet.is þar sem koma þarf fram IS númer hests, keppnisflokkur, kennitala knapa og upp á hvor hönd riðið er.
Einnig er tekið á móti skráningum hjá Drífu og Laufey í símum 893-3559 og 660-1750.

Síðasti dagur skráningar er 16. febrúar.

Bleika slaufan er alþjóðlegt tákn í baráttunni gegn brjóstakrabbameini. Hvatt er til þess að knapar og áhorfendur klæðist bleiku í tilefni dagsins og sýni þannig samstöðu.