Allra sterkustu aflýst

Í ljósi aðstæðna og röskunar á mótahaldi í vetur hefur landsliðsnefnd tekið þá ákvörðun að aflýsa Allra sterkustu þetta árið.

Allra sterkustu hefur verið mikilvægur fjáröflunarviðburður fyrir landsliðið og mikil skemmtun fyrir hestaunnendur sem hafa stutt okkur í gegnum tíðina. Vegna samkomutakmarkana er ekki mögulegt að fylla höllina af áhorfendum en það hefur m.a. skapað þá miklu stemmningu sem fylgir þessum skemmtilega viðburði.

Landsliðsnefnd harmar þessa niðurstöðu en við treystum á áframhaldandi samstarf og stuðning hestamanna.

Stóðhestavelta landsliðsins verður að sjálfsögðu haldið til streitu og höldum við áfram að kynna þá glæsilegu stóðhesta sem eru í boði. Sala hefst á föstudag kl. 12.

Þökkum stóðhestaeigendum sem hafa gefið tolla í stóðhestaveltuna ómetanlegan stuðning.

Landliðsnefnd.