Æskulýðsmót Andvara og Gusts

Sameiginlegt gæðingamót á vegum æskulýðsdeilda Andvara og Gusts verður haldið þriðjudaginn 1.maí kl.11:00. Mótið er styrkt af Hátækni ehf. Sameiginlegt gæðingamót á vegum æskulýðsdeilda Andvara og Gusts verður haldið þriðjudaginn 1.maí kl.11:00. Mótið er styrkt af Hátækni ehf.

Pollaflokkur keppir inni í reiðhöll og er skipt í tvennt. Annarsvegar þeir sem ríða sjálfir og hinsvegar þeir sem teymt er undir. Teymingarhópur sýnir tölt eða brokk. Þeir sem ríða sjálfir skulu sýna tvær gangtegundir, fet og síðan tölt eða brokk Börn, unglingar og ungmenni keppa á hringvellinum í formi gæðingakeppni.

Forkeppni gildir, engin úrslit. Verðlaunaafhending verður á eftir hverjum flokki.

Boðið verður upp á grillaðar pylsur og drykki á meðan á móti stendur.

Skráning fer fram á http://www.gustarar.is/ til kl.22:00 á laugardaginn 28.apríl

Engin skráningargjöld og leyfilegt er að knapi skrái fleiri en einn hest.