Endurmenntun

Símenntun reiðkennara LH og FEIF (List of Trainers and Instructors)

Samkvæmt reglum/lögum FEIF eiga allir reiðkennarar (Trainer 1 - 4) að taka þátt í símenntunarnámskeiði sem samþykkt er af sínu landssambandi til þess að vera skráður reiðkennari á reiðkennaralista FEIF (Matrix list) Frá 2021 má engin reiðkennari vera á listanum nema viðkomandi uppfylli kröfur um endurmenntun/símenntun. 

Af hverju símenntun:

  • Til að viðhalda gæðum reiðkennara.
  • Stuðla að reglulegri uppfærslu þekkingar og hæfni reiðkennara.
  • Til að fylgja markmiðum FEIF í þjálfun hesta, reiðkennslu og hestavelferð.
  • Svo svipuðum reglum sé fylgt milli landa.
  • Til að tryggja sambærilegar kröfur milli landa.

Lágmarkskröfur sem LH setur til að halda nafni sínu á reiðkennaralistanum

Á þriggja ára tímabili þarf að taka þátt í a.m.k.: 

  • einu tveggja daga símenntunarnámskeiði sem er samþykkt af menntanefnd LH eða að lágmarki taka 16 símenntunareiningar (45 min) samþykktar af Menntanefnd LH.

Til að komast aftur á listann þarf að fara á eitt opinbert símenntunarnámskeið samþykkt af Menntanefnd LH eða FEIF (16 símenntunareiningar)

Kröfur til gildra símenntunarnámskeiða:

Skilafrestir:

Mælt er með að ef reiðkennarar hafi tryggingu fyrir því að hafa setið/tekið þátt í símenntunarnámskeiði og skila þarf inn staðfestingu á símenntun fyrir 1. Feb ár hvert. Einfaldast er þó að senda inn staðfestingu á símenntun á hverju ári þegar við á, þannig uppfærir Skrifstofa LH jafnóðum.

Hvað er reiðkennaralisti?/ FEIF Matrix list?

Reiðkennaralistinn er listi sem inniheldur virka reiðkennara og þjálfara og þurfa þeir að sjá til þess sjálfir að þeir séu á þessum lista ef þeir eru virkir með því að senda tilkynningu til LH þar að lútandi. Ef reiðkennarar eru hættir störfum og vilja ekki vera á listanum er hægt að láta taka sig út, og ef engin gögn um endurmenntun er skilað inn á 3ja ára tímabili, verður nafn viðkomandi tekið út. Ef reiðkennari sér að hann er ekki á réttum stað á listanum þá hafi hann samband við LH og láti laga það. Hafi reiðkennari hug á að taka þátt í námskeiði sem ekki hefur verið formlega staðfest sem símenntun af LH, getur hann sótt um að svo verði, áður en námskeiðið á sér stað. 

Flestir starfandi reiðkennarar og þjálfarar sækja sér reglulega símenntun af ýmsu tagi, margir mun meira en þessi lágmarkskrafa sem LH setur. Það er allra hagur að þeir reiðkennarar sem eru á alþjóðlegum listum sem slíkir séu líka virkir og faglega sterkir. Símenntun styður þannig okkur öll.

Staðfestingarskjal:

Hér er hægt að finna staðfestingarskjal og má prenta út og láta skrifa undir þegar námskeiði er lokið og skila svo í tölvupósti eða koma með á skrifstofu LH. 

Viðburðir verða auglýstir sem símenntunarviðburðir og hvaða einingafjöldi þeir teljast á hér á vefsíðu LH. 

 Námskeið/ráðstefnur

LH mun standa fyrir símenntunarnámskeiði árlega. 

Ef einhver vill halda námskeið/ráðstefnu sem gildir sem símenntunarnámskeið má sækja um það til menntanefndar LH. Námskeiðið verður að:

    • vera opinbert og auglýst
    • hafa þema og fræðilegan hluta (þ.e.a.s.  reiðnámskeið einungis verklegt - reiðtímar eru ekki teknir gildir)
    • hafa dagskrá sem endurspeglar innihald námskeiðsins

Sækja má um að fá námskeið/ráðstefnu metið. Krafa er um að það sé gert með góðum fyrirvara fyrir námskeiðið. Senda þarf auglýsingu um námskeiðið og upplýsingar til menntanefndar LH áður en námskeið hefst. Gott er að senda stutta rökfærslu fyrir hvernig námskeiðið mun nýtast. Dæmi um námskeið sem eru tekin gild:

    • námskeiðið hefur þema sem nýtist í reiðkennslu, og hefur dagskrá sem endurspeglar þema námskeiðsins.
    • námskeiðið er opinbert
    • gild námskeið eru einnig þau símenntunarnámskeið (CPD) sem eru auglýst af öðrum aðilum FEIF
    • gild námskeið geta einnig verið námskeið sem eru ekki innan FEIF eða Íslandshesta heimsins

Skil gagna 

Það er á ábyrgð reiðkennarans að senda gögn um símenntun sína til skrifstofu LH. Gott viðmiðið er að senda gögn í febrúar fyrir árið sem var að líða. 

Árétta skal að þeir sem sækja sér ekki símenntun á þriggja ára tímabili og skila ekki gögnum þar um á réttum tíma verða teknir út af reiðkennaralista FEIF.