Fréttir: Júní 2025

Ný vefsíða og lén

01.06.2025
Landssamband Hestamannafélaga hefur að undanförnu unnið að gerð nýrrar vefsíðu fyrir sambandið. Vefurinn er enn í vinnslu þar sem að mörgu er að huga á vef sem er jafn yfirgripsmikill og vefsíðan er um þessar mundir. Nýr vefur mun skalast betur en eldri vefur á mismunandi tækjum. Auk þess sem hægt er að aðlaga undirsíður vefsins betur að því efni sem við þurfum og viljum koma á framfæri.