Tilkynning frá hrossaræktarráðunauti

Varla hefur hún farið framhjá nokkrum hestamanni sú kvefpest sem þessa dagana herjar á hrossastofninn. Ljóst er að pestin er mun alvarlegri en í fyrstu var talið og virðist hrossum mjög hætt við að slá niður ef ekki er varlega farið, þó menn telji einkenni horfin.

Tilkynning frá Tölvunefnd LH

Því miður reyndust vera villur í þeirri útgáfu af Kappa sem gefin var út um miðjan apríl síðastliðinn. Búið er að laga villurnar. Þeir sem hafa sótt Kappa á vef LH á undanförnum 2 vikum þurfa því að sækja hann aftur og setja hann upp að nýju.

Smitandi hósti í hrossum – stöðumat 4. maí

Nú eru 4 vikur liðnar frá því tilkynning barst um smitandi hósta í hrossum, nokkuð samtímis í Skagafirði og á Suðurlandi. Þá þegar var ljóst að veikin hafði búið um sig um nokkra hríð, 3-4 vikur hið minnsta og kannski miklu lengur.Þó ekki sé búið að greina orsökina hefur nokkur reynsla safnast um gang veikinnar og myndin skýrist dag frá degi.

Síðasti skráningardagur í dag!

Nú er verið að taka niður skráningar á kynbótasýninguna í Víðidal. Síðasti skráningardagur er í dag. Tekið er við skráningum í síma 480-1800 en einnig er hægt að ská hross til sýningar á heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands  www.bssl.is.  Þar er einnig að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um  kynbótsýningar o.fl.

Kappa og Mótafengur - námskeið

Minnum á námskeið Tölvunefndar LH í dag, mánudaginn 3.maí, kl.17:00 ÍSÍ húsinu, 3.hæð. Mælt er eindregið með því að hvert félag sendi sinn fulltrúa á námskeiðið.

Töltmót Léttis

Mótanefnd Léttis hefur ákveðið að halda Töltmót, föstudaginn 7. maí. Mótið verður haldið á Hlíðarholtsvelli, Lögmannshlíð og hefst mótið kl. 18:00.