Réttir í Melgerðismelarétt

Réttað verður í Melgerðismelarétt þann 2. október kl. 13:00. Að réttum loknum stendur Hrossaræktarfélagið Náttfari fyrir sölusýningu á Melgerðismelum kl. 15:30 og endað verður á stóðréttadansleik í Funaborg kl. 23:00. Húsið opnar kl. 22:00 og mun hljómsveitin Cantabil leika fyrir dansi fram á nótt. Miðaverð aðeins 1.500-.

Helgi Björns heldur uppi stuðinu á Uppskeruhátíð hestamanna!

Miðasala er hafin á Uppskeruhátíð hestamanna sem haldin verður þann 6.nóvember nk. á Broadway.

Mótmæli vegna lokunar Vonarskarðs

Laugardaginn 2.október kl.13:00 við Vonarskarð munu Útivistarfélög á Íslandi efna til mótmæla vegna lokunnar á Vonarskarði. Mótmælin fara fram undir yfirskriftinni „Jarðarför á ferðafrelsi Íslendinga".

Krefjast ferðafrelsis í Vatnajökulsþjóðgarði

Fjölmargir aðilar í ferðaþjónustu og útivist eru afar ósáttir við verndaráætlun sem stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur lagt fyrir umhverfisráðherra til staðfestingar.

Heimildarmynd Baldur & Baldur

Eins og áður hefur komið fram á heimasíðu hestamannafélagsins Hrings (www.hringurdalvik.net) hefur Þorfinnur Guðnason unnið að heimildarmynd um stóðhestinn Baldur frá Bakka.

Uppskeruhátíð barna og unglinga í Létti

Sunnudaginn 17. október kl 17.00 verður haldin uppskeruhátíð fyrir Léttiskrakka í Top Reiter höllinni. Þar verða afhentar viðurkenningar fyrir bestu mætingu í reiðtíma og verðlaun fyrir knapa ársins í barna- og unglingaflokki.

Stóðréttir í Tungurétt

Laugardaginn 2. október verða haldnar stóðréttir í Tungurétt í Svarfaðardal. Reiknað er með að stóðið komi að Tungum um kl 11.00 en réttarstörf hefjast kl 13:00.

Framhalds-Felixnámskeið á vegum ÍSÍ & UMFÍ

Felix – framhald- 12. Október kl. 14-16, Íþróttamiðstöðin í Laugardal salur D

Felixnámskeið á vegum ÍSÍ & UMFÍ

Felix –Fyrstu skrefin 5. Október kl. 14-16, Íþróttamiðstöðin í Laugardal salur D.

Minnisvarði til heiðurs Höskuldar Eyjólfssonar

Til stendur að reisa Höskuldi Eyjólfssyni heitnum á Hofsstöðum verðugan minnisvarða sem kemur til með að standa við hrossagerðið við kirkjuna í Reykholti.