30.11.1999
Skrifstofa LH er flutt á Landsmót hestamanna á Hellu þessa viku og er skirfstofan því eðlilega lokuð. Hún opnar aftur þriðjudaginn 8. júlí. Upplýsingasími á meðan landsmótinu stendur er 841 0011
Bestu kveðjur - skrifstofan
30.11.1999
Þeir sem eiga eftir að sækja verðlaunagripi frá Landsmóti geta nálgast þá á skrifstofu LH að Engjavegi 6, 104 Rvík. Skrifstofan er opin alla virka daga á milli 9-16.
Bestu kveðjur,
Skrifstofa LH
30.11.1999
Minnum á að LHhestar kemur út með Fréttablaðinu á morgun.
30.11.1999
Búið er að velja landsliðið sem mun keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu sem fram fer í Seljord, Noregi dagana 4.-10. ágúst. Landsliðseinvaldur er Einar Öder Magnússon og honum til aðstoðar verður Hinrik Bragason.
30.11.1999
Sérsambönd innan ÍSÍ tilnefna nú eitt af öðru kandídata sína til íþróttamanns ársins. Landssamband hestamannafélaga hefur valið tvo knapa, mann og konu, sem sína íþróttamenn. Þeir verða kynntir föstudaginn 19. desember klukkan 16.00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
30.11.1999
Fyrir tæpum tveimur áratugum drápust á annað hundrað hrossa úr salmonellu sýkingu í Landeyjum og víðar á Suðurlandi. Aðallega fölold og trippi. Þar er talsvert um vatnsból sem eru tjarnir sem grafnar eru í landið.
30.11.1999
Gunnar Örn Guðmundsson, héraðsdýralæknir, sagði í samtali við LH-Hesta að enginn vafi léki lengur á því að um salmonellu sýkingu væri að ræða í öllum hrossunum sem veikst hafa. Hann segir flest benda til þess að sýkingin hafi verið til staðar í litlum tjörnum í beitarhólfinu.
30.11.1999
Eins og fram hefur komið í fréttum hafa nokkrir hestamenn í Mosfellsbæ orðið fyrir umtalsverðum skaða nú um hátíðirnar. Samkvæmt síðustu fréttum hafa nítján reiðhross drepist af völdum salmonellu sýkingar. Þau voru í hópi fjörutíu hrossa sem voru í hagagöngu í hólfi við Esjurætur.
30.11.1999
Stefnt er að því að flytja þau hross, sem talin eru að muni lifa af salmonellu sýkinguna, burt úr hesthúsahverfinu í Mosfellsbæ sem allra fyrst. Yfir tuttugu af fjörutíu sem veiktust hafa drepist og í gær voru ein fjögur sem talið var að myndu ekki lifa af.
30.11.1999
Yfirlit yfir árangur Íslendinga á Norðurlandamótinu 2008.