Rásröð í milliriðlum í A-flokki gæðinga

Rásröð liggur fyrir í milliriðlum í A-flokki gæðinga sem fram fer klukkan 13:30 á morgun, fimmtudag.

Sterkur flokkur 5 vetra stóðhesta

Hinn bleikstjörnótti og ættstóri Ómur frá Kvistum stóð efstur í flokki 5 vetra stóðhesta eftir kynbótadóma í dag. Hann státar af því að vera afkomandi þeirra Ófeigs frá Flugumýri og Oturs frá Sauðárkróki.

Glotti frá Sveinatungu efstur 6 vetra stóðhesta

Glotti frá Sveinatungu stendur efstur í flokki 6 vetra stóðhesta eftir sýningar dagsins. Hann lækkaði eilítið í aðaleinkunn, fór niður um hálfan fyrir brokk og fegurð í reið, en hækkaði hins vegar fyrir skeið.

Kynbótadómar stóðhesta 7 vetra og eldri

Gaumur frá Auðsholtshjáleigu stendur efstur í flokki 7 vetra og eldri stóðhesta eftir kynbótadóma á miðvikudag.

Birna hélt efsta sætinu

Birna Ósk Ólafsdóttir á Smyrli frá Stokkhólma hélt efsta sætinu í barnaflokki, en milliriðill var riðinn í morgun. Heldur hvasst var á ungu knapana, en öll stóðu börnin sig með mikilli prýði.

Yfirlitssýningar hryssna í dag

Lukka frá Stóra-Vatnsskarði var áfram langefst í flokki 7 vetra og eldri hryssna eftir yfirlitssýningar í morgun. Sýningum 7 vetra og eldri og sex vetra er lokið, en yfirlitsdómar 5 vetra hryssna standa yfir. Salka frá Stuðlum stendur efst fyrir yfirlit í flokki 4 vetra hryssna.

Kolskeggur frá Oddhóli hélt sínu

Kolskeggur frá Oddhóli og Sigurbjörn Bárðarson héldu efsta sætinu, eftir milliriðla í A-flokki gæðinga í dag. Stakkur frá Halldórsstöðum, sem var í öðru sæti eftir forkeppnina og Sigurbjörn reið einnig, féll hins vegar niður í 14. sætið.

Yfirlitssýningum hryssna lokið

Píla frá Syðra-Garðshorni stendur efst í flokki 5 vetra hryssna eftir yfirlitssýningar í dag, með 8,64 fyrir hæfileika og 8,50 í aðaleinkunn. Í flokki 4 vetra hryssna stendur Gletta frá Þjóðólfshaga hæst eftir yfirlitið með aðaleinkunnina 8,35.

Þorvaldur Árni og Rökkvi efstir í töltinu

Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Rökkvi frá Hárlaugsstöðum eru efstir eftir forkeppni í tölti sem fram fór í dag. Vitað var fyrirfram að Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi myndu að vanda veita þeim félögum Þorvaldi og Rökkva harða keppni. Svo fór að Viðar og Tumi enduðu í öðru sæti með 8,43.

Röðull frá Kálfholti hélt efsta sætinu með 8,68

Röðull frá Kálfholti og Ísleifur Jónasson eru enn efstir í B-flokki gæðinga eftir milliriðla sem riðnir voru í morgun, með einkunnina 8,68. Fast á hæla þeim koma Eldjárn frá Tjaldhólum með 8,66 og Akkur frá Brautarholti með sömu einkunn.