Æskulýðsmót Norðurlands

Nordic Gæðingakeppni

Hestamannafélagið Sleipnir í Noregi áætlar að halda Norræna Gæðingakeppni í Biri 13.-15. September 2013. LH mun ekki senda út lið á viðburðinn en hvetur áhugasama knapa til að kynna sér keppnina betur og skrá sig til leiks sé vilji fyrir hendi. Skrifstofa LH mun verða þátttakendum innan handar við skráningu og öflun upplýsinga hvað keppnina varðar.

Breytingar á landsliði Íslands

Landsliðsnefnd LH og liðsstjóri íslenska landsliðsins tilkynna breytingar á landsliði Íslands í hestaíþróttum. Vegna veikinda getur Oliver frá Kvistum ekki tekið þátt í heimsmeistaramótinu í Berlín. Eigendur og dýralæknar tóku þessa ákvörðun með velferð hestsins í huga. Þetta eru slæmar fréttir fyrir íslenska liðið og knapa Olivers, Daníel Jónsson sem verður þar af leiðandi ekki með á HM.

Íslandsmóti yngri flokka lokið

Glæsilegu Íslandsmóti yngri flokka lauk í dag, hér má sjá öll úrslit dagsins.

Gæðingamót Smára

Dýralæknaskoðun

Nú styttist í ferð íslenska landsliðsins á HM í Berlín en í dag eru einungis 15 dagar í að lagt verði í hann. Samkvæmt venju fara hestarnir þó aðeins á undan liðinu sjálfu en dýralæknaskoðun fyrir flugið mun fara fram á Grænhól miðvikudaginn 24.júlí kl 10:00.

Breytingar á stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

Við fráfall Ólafs E. Rafnssonar forseta ÍSÍ 10.júní sl. tók Lárus L. Blöndal varaforseti ÍSÍ við embætti forseta ÍSÍ, eins og lög ÍSÍ kveða á um.

Landsliðið orðið fullskipað

Landslið Íslands í hestaíþróttum er nú orðið fullskipað. Við glæsilegan hóp knapa og hesta bætist Karen Líndal Marteinsdóttir og Týr frá Þverá II. Þau lentu í þriðja sæti í fjórgangi á nýafstöðnu Íslandsmóti í Borgarnesi og eru sannarlega vel að sætinu í landsliðinu komin.

Íslandsmót yngri flokka - Ráslistar

Ráslistar fyrir Íslandsmót yngri flokka eru komnir.

Suðurlandsmót kalla og kvenna