57. Landsþing LH hefst í dag

57. Landsþing Landssambands hestamannafélaga hefst í dag, föstudaginn 22.október, og verður sett kl.14:00. Þingið fer að þessu sinni fram á Akureyri, í Brekkuskóla, og lýkur á morgun, laugardaginn 23.október.

Davíð Ólafsson veislustjóri á Uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga verður haldin þann 6.nóvember nk. á Broadway. Miðasala fer fram á Broadway, Ármúla 9, 108 Reykjavík, s: 533-1100 og á netfanginu: midasala@broadway.is

Ekki mikið um folaldadauða í kjölfar smitandi hósta

Folöld hafa reynst afar móttækileg fyrir sýkingu af völdum Streptococcus zooepidemicus, smitandi hósta, nú í sumar og haust og enn ber nokkuð á veikindum hjá þessum hópi.

Fjarnám 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ

Fjarnám 2. stigs almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 8. nóvember næstkomandi.  Námið er öllum opið sem lokið hafa 1. stigi almenns hluta hjá ÍSÍ eða íþróttafræði 1024 í framhaldsskóla á undanförnum árum.

Endurmenntunanámskeið LBHÍ

Fræðslukvöld um liti/erfðir hrossa og járninganámskeið fyrir lengra komna.

Uppskeruhátíð barna og unglinga Léttis 2010

Sunnudaginn 17. október var haldin uppskeru hátíð barna og unglinga í Létti. Mætingin var ágæt og skemmtu sér allir vel. Á hátíðinni eru veitt ýmis verðlaun og er nú talið upp hver þau eru.

Áfangaskýrsla um Landsmót kl.18

Í kvöld, miðvikudaginn 20.okt., kl. 18-20, mun sérstök nefnd sem unnið hefur að stefnumótun Landsmóts kynna áfangaskýrslu nefndarinnar.

Áfangaskýrsla stefnumótunar Landsmóts - Norðurland

Að gefnu tilefni viljum við benda á að áfangaskýrsla stefnumótunar Landsmóts verður til kynningar á Landsþingi LH á Akureyri föstudaginn 22.okt.

Þingslitafagnaður Léttis

Laugardaginn 23.okt. mun Léttir halda Þingslitafagnað á Oddvitanum.

Viðburðir á vegum almenningsíþróttasviðs ÍSÍ

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands mun standa fyrir eftirfarandi hvatningar- og átaksverkefnum árið 2011: