Fleiri myndir frá Landsþingi LH

57. Landsþing Landssamband hestamannafélaga var haldið á Akureyri dagana 22. og 23. október síðastliðinn. Hér má sjá fleiri myndir frá Landsþingi LH.

Afgreiðsla þingskjala frá 57. Landsþingi LH

Með því að smella hér má sjá niðurstöður og afgreiðslu þingskjala frá 57. Landsþingi LH.

Íslandsmót 2011 og 2012

Á Landsþinginu var ákveðið hvar næstu Íslandsmót, yngri flokka og fullorðinna, færu fram. Kjósa þurfti um hvar skyldi halda Íslandsmótið 2012 þar sem fleiri en eitt hestamannafélag bauðst til þess að halda mótið. Hinsvegar var einungis eitt félag sem bauðst til að halda Íslandsmótið 2011 og þurfti því ekki að kjósa um það.

Ályktanir frá Landsþingi LH

Á 57. Landsþingi Landssambands hestamannafélaga sem fór fram á Akureyri dagana 22. og 23. október síðastliðin voru eftirfarandi ályktanir samþykktar af þinginu.

Ný stjórn LH kosin

Á 57. Landsþingi LH sem haldið var síðastliðna helgi var gengið til kosninga á nýrri stjórn sambandsins. Kosningarnar voru mjög spennandi og eru niðurstöður þeirra að sjá hér.

Jón Ólafur Sigfússon heiðraður

Landssamband hestamannafélaga heiðrar reglulega félaga sína fyrir góð störf í þágu hestamennskunnar. Á föstudegi Landsþings voru fimm félagar heiðraðir, eins og sjá má í frétt hér á heimasíðunni, og á laugardegi var einn félagi heiðraður þar sem hann átti heimangengt á föstudegi.

Myndir frá Landsþingi LH

Hér má sjá nokkrar myndir af Landsþingi frá því í dag. Rétt í þessu eru flestar nefndir að ljúka nefndarstörfum og næst á dagskrá er reiðsýning í TopReiter höllinni í boði Léttismanna.

Félagar heiðraðir

Landssamband hestamannafélaga heiðrar reglulega félaga sína fyrir góð störf í þágu hestamennskunnar. Að þessu sinni voru eftirtaldir aðilar heiðraðir og var það Haraldur Þórarinsson sem veitti þeim gullmerki LH:

Logi hlýtur Æskulýðsbikar LH

Það var hestamannafélagið Logi sem hlaut Æskulýðsbikar LH árið 2010. Formaður félagsins, Guðrún Magnúsdóttir, veitti bikarnum viðtöku. Landssamband hestamannafélaga óskar hestamannafélaginu Loga innilega til hamingju með mjög svo verðskuldaða viðurkenningu.

Góð mæting á Landsþing

57. Landsþing LH stendur nú yfir á Akureyri. Mjög góð mæting er á fundinn. Fjöldi þingfulltrúa er 168 auk þess er fjöldi áheyrendafulltrúa sem sitja fundinn.