Kreppan ekki komin í Hestheima

Kreppan er ekki ennþá komin í Hestheima. Þar reka hjónin Marteinn Hjaltested og Lea Helga Ólafsdóttir hestamiðstöð og ferðaþjónustu. Fullbókað er á járninganámskeið sem haldið verður í Hestheimum í desember og janúar.

Skaflajárn hækka í verði

Skaflaskeifur hafa hækkað umtalsvert í verði og kosta nú á bilinu 2000 til 3000 krónur gangurinn með sköflum. Þess skal getið að til langs tíma hafa skeifur verið fremur ódýrar og ekki hækkað í verði í samræmi við aðrar hestavörur.

Mótekja er atvinnugrein víða um heim

Mór er nú nefndur til sögunnar sem hugsanlegur undirburður undir hesta. Mótekja var stunduð hér á landi allt fram á tuttugustu öld og þurrkaður mór notaður sem eldsneyti. Mótekja er ennþá stunduð sem atvinnuvegur víða um heim, til dæmis hjá frændum okkar á Írlandi.

Einar Ragnarsson yfirdómari á HM2009

Einar Ragnarsson, hestaíþróttadómari með meiru, verður yfirdómari á HM2009 í Sviss. Það verður í þriðja sinn sem Einar er yfirdómari á heimsmeistaramótum. Áður á HM2003 og HM2007.

Íslenskur mór gæti verið svarið við hækkandi verði á tréspæni

„Spónakostnaður hjá okkur á ári liggur á bilinu þrjár til fjórar milljónir króna miðað við heils árs rekstur,“ segir Sigurður Sæmundsson á Skeiðvöllum í Landssveit. Sigurður veltir því nú fyrir sér hvort þurrkun á íslenskum mó í undirburð sé raunhæfur kostur.

Spónakostnaður sligar tamningastöðvar

Verð á tréspónum hefur rokið upp og er orðinn verulega þungur liður í rekstri tamningastöðva og í hestahaldi einstaklinga sem eru með safnstíur. Flórlæri á reiðhestum og tamningatrippum gætu því orðið með meira móti næstu misserin ef að líkum lætur.

Myndir frá Uppskeruhátið 2008 4. holl

Myndir frá Uppskeruhátið 2008 - 3. holl Jens Einarsson tók nokkrar myndir á Uppskeruhátíð hestamanna á Broadway. Góða skemmtun!