Þórgunnur Þórarinsdóttir er Íslandsmeistari í fjórgangi unglinga 2022

Þórgunnur Þórarinsdóttir og Hnjúkur frá Saurbæ báru sigur úr býtum í fjórgangi V1 í unglingaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga 2022. Þau hlutu einkunnina 7,10 í úrslitum. 
 
Kaupfélag Borgfirðinga styrkti þessa grein á mótinu og Lífland gaf gjafabréf til sigurvegara. Farandbikar LH var gefinn af Hestamannafélaginu Spretti. Til hamingju Þórgunnur!
 
1. Þórgunnur Þórarinsdóttir / Hnjúkur frá Saurbæ 7,10
2. Ragnar Snær Viðarsson / Kría frá Kópavogi 7,03
3. Sara Dís Snorradóttir / Bálkur frá Dýrfinnustöðum 6,87
4. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Jökull frá Rauðalæk 6,83
5. Matthías Sigurðsson / Æsa frá Norður-Reykjum I 6,70
6. Hekla Rán Hannesdóttir / Grímur frá Skógarási 6,67